Enski boltinn

„Mo Salah sá sem að gekk of langt“

Sindri Sverrisson skrifar
Mohamed Salah var augljóslega ekki sáttur með stjórann sinn á laugardaginn.
Mohamed Salah var augljóslega ekki sáttur með stjórann sinn á laugardaginn. Getty/Justin Setterfield

Mohamed Salah fór yfir strikið þegar hann reifst við knattspyrnustjóra sinn hjá Liverpool, Jürgen Klopp, á hliðarlínunni á laugardag í 2-2 jafnteflisleiknum við West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta segir fyrrverandi framherjinn Chris Sutton í Monday Night Club á BBC.

Klopp tók Salah út úr byrjunarliðinu fyrir leikinn við Hamrana, og þeir sáust svo rífast þegar Salah var skipt inn á rúmum tíu mínútum fyrir leikslok.

Salah hefur skorað manna mest fyrir Liverpool í vetur eða 24 mörk en ekki verið upp á sitt besta að undanförnu og hafði engan rétt á að rífast við Klopp að mati Sutton, sem ekki vildi setja út á stjórann:

„Ég var ekki hrifinn af þessu en ég tel að Mo Salah sé sá sem gekk of langt,“ sagði Sutton. Salah kvaðst eftir leik ekki ætla að tjá sig um málið. „Ef ég tala í dag mun allt loga,“ sagði Salah.

„Hann er ekkert öðruvísi en liðsfélagar hans hjá Liverpool og sannleikurinn er sá að formið hefur ekki verið eins gott hjá honum síðan hann sneri aftur eftir meiðsli. Þetta er ekki sagt til að níða Salah og þann stórkostlega leikmann sem hann hefur verið hjá Liverpool. Hann hefur verið magnaður en það er strik þarna og því miður fór hann yfir það,“ sagði Sutton.

Klopp, sem kveður Liverpool í sumar, fékk Salah til félagsins sumarið 2017 og hann hefur stöðugt verið lykilmaður liðsins. Það þýðir þó ekki að hann eigi heimtingu á sæti í byrjunarliðinu, að mati Suttons:

„Maður getur ekki lifað á því liðna. Þetta snýst um stund og stað, og Klopp ákvað að taka hann út úr liðinu. Hann hefur rétt á því. Hann er stjórinn og Salah er ekkert öðruvísi en liðsfélagar hans.“

Sagður ekki vera til sölu

Samningur Salah við Liverpool gildir til sumarsins 2025 og hann hefur verið orðaður við mögulega sölu til Sádi Arabíu í sumar. Samkvæmt BBC er afstaða Liverpool þó áfram sú sama og fyrir leikinn við West Ham; Salah er ekki til sölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×